12
1-2 Drottinn! Hjálpa þú! Hinum trúuðu fækkar óðum. Hvar eru þeir sem hægt er að treysta? 3 Allir ljúga og iðka svik og pretti, en einlægnin virðist fokin út í veður og vind.
4-5 En Drottinn mun ekki fara mjúkum höndum um þá sem iðka ranglæti. Hann mun útrýma þessum lygurum sem segja: „Við skulum ljúga til um áform okkar, enda ráðum við sjálfir hvað við segjum!“ 6 Þessu svarar Drottinn: „Ég mun rísa upp og verja þá kúguðu, fátæku og hrjáðu. Ég mun frelsa þá samkvæmt bænum þeirra.“ 7 Loforð Drottins eru áreiðanleg. Hvert orð á vörum hans er satt og rétt eins og marghreinsað skíragull. 8 Drottinn, við vitum að þú munt varðveita þitt fólk frá verkum illra manna, þó svo þeir vaði alls staðar uppi og njóti heiðurs í landinu.