Sálmarnir. 15. Drottinn, hver fær að leita skjóls og hælis í tjaldi þínu á fjallinu þínu helga? Sá sem er hógvær og lifir réttlátu lífi. Sá sem ekki baktalar náungann, leggur sig ekki eftir slúðri né gerir meðbróður sínum mein. Sá sem andmælir illverkum og fyrirlítur þau. Sá sem heiðrar þá er fylgja Drottni í trúfesti og stendur við orð sín hvað sem það kostar.