Sálmarnir. 123. Ó, Guð, þú sem ríkir á himnum, ég hef augu mín til þín. Við horfum til Drottins Guðs, þráum miskunn hans og náð, rétt eins og þjónninn mænir á húsbónda sinn og þernan á húsmóður sína. Miskunna okkur, Drottinn, miskunna okkur. Við höfum fengið nóg af háði og spotti hinna hrokafullu.